Okkar heimur

Okkar heimur er fyrir börn og ungmenni sem eiga foreldra með geð- eða fíknisjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Í þessum þáttum ætlum við að tala opinskátt um það sem oft er þögn í kringum – um reynslu barna og ungmenna sem eiga foreldri með geðsjúkdóm, hvað það þýðir að vera foreldri og glíma við geðræn veikindi og hvernig við getum öll, sem samfélag, stutt við hvert annað þegar kemur að geðheilsu okkar og geðrænum veikindum.

Episodes

Latest Episodes

Sep 11, 2026

46 min

Spjall við Anítu Georgs, áhrifavald og stofnanda samfélagsmiðilsins Hennar heimur, um reynslu hennar af því að greinast með geðhvörf 1. Hún segir frá viðbrögðum fólks við sjúkdómnum, fordómum og því hvernig hún hefur unnið að bata og aukinni sjálfsþekkingu. Aníta ræðir einnig mikilvægi þess að fá að vera fyrst og fremst kona, móðir og manneskja, því sjúkdómsgreiningin er aðeins hluti af henni en skilgreinir hana ekki. 
 
Meira efni frá Okkar heimi má finna á fræðslusíðunni www.okkarheimur.is 
Okkar heimur er einnig á Tiktok, Instagram og Facebook. 
Endilega fylgið okkur svo þið fáið tilkynningar um nýjustu þættina.

Sep 11, 2026

46 min

Sep 11, 2026

37 min

Sigríður sest niður með Bergdísi Júlíu, leikstjóra og leiklistarkennara, og ræðir um þá fordóma sem enn eru til staðar í íslensku samfélagi gagnvart geðrænum vanda og geðsjúkdómum. Þær skoða hvernig fordómarnir birtast, hvaða áhrif þeir geta haft á einstaklinga og fjölskyldur og hvers vegna fólk veigrar sér stundum við að ræða geðheilsu. Því er fátt annað eins mikilvægt og fræðsla, opinská samtöl og að mæta fólki af skilningi fremur en ótta.  
 
Meira efni frá Okkar heimi má finna á fræðslusíðunni www.okkarheimur.is 
Okkar heimur er einnig á Tiktok, Instagram og Facebook. 
Endilega fylgið okkur svo þið fáið tilkynningar um nýjustu þættina. 

Sep 11, 2026

37 min

Sep 11, 2026

2 min

Fylgið Sigríði Gísladóttur, þáttastjórnanda og stofnanda Okkar heims, þar sem hún fær til sín góða gesti og ræðir opinskátt um það sem oft er þögn í kringum – um reynslu barna og ungmenna sem eiga foreldri með geðsjúkdóm, um hvað það þýðir að vera foreldri og glíma við geðræn veikindi og hvernig við getum öll, sem samfélag, stutt hvert við annað þegar kemur að geðheilsu okkar og geðrænum veikindum.